Álfdís Eir

Sæll vertu elskulegi lesandi.

Vertu hjartan velkomin á þessa vefsíðu mína. Hér muntu finna jákvæðni í hvívetna og ætla ég að nota þennan miðil til að miðla því hversu dásamlegt lífið er. Ég mun taka fyrir neikvæðar fréttir, snúa upp á þær og sýna fram á að þær eru í raun ekkert nema jákvæðar.

Annars er ég 27 ára hnáta, fædd í Danmörku en uppalin í Kópavogi. Þar gekk ég í Snælandsskóla og að honum tók við Menntaskólinn í Reykjavík. Þaðan útskrifaðist ég með hæstu einkun í félagsfræði og dönsku. Síðan þá hef ég unnið sjálfstætt við skapandi verkefni fyrir ýmsa aðila.

Fleira var það nú ekki í bili en ég vona innilega að þú munir ekki sjá eftir þeim tíma sem þú eyðir hérna. Einnig vona ég að þú getir að loknum lestri snúið endurnærður og ánægður aftur út í lífið.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband